Við fórum um daginn í leiðsögn um hinn fornfræga skemmtigarð Spreepark. Garðurinn fór á hausinn árið 2001 og hefur drabbast niður síðan. Dóttir eigandans sá um túrinn, en fjölskylda hennar var vægast sagt í sviðsljósinu á sínum tíma. Pabbi hennar og bróðir áformuðu að bjarga fjárhagnum með því að smygla smá kókaíni til Þýskalands (167kg) inni í skemmtitæki sem hann var að flytja inn frá Perú. Það fór allt mjög illa og þeir feðgar sitja í fangelsi, faðirinn í Þýskalandi og sonurinn í Perú.
Dóttirin sem sá um gönguferðina dregur ekkert undan og er til í að svara öllum spurningum um garðinn og fjölskylduna. Afar áhugavert í alla staði.
Þetta er víst stærsti og jafnframt dýrasti vatnsrússíbani í Evrópu. Skemmtileg en slæm ákvörðun að byggja hann segir leiðsögumaðurinn. |
Tómir bátar í vatnsrússíbananum. |
Skógurinn að taka yfir. |
Öll mannvirkin eru að drabbast niður. Hér er inngangur í einn rússíbanann. |
Rússíbanarnir eru að hverfa í gróðurinn. |
©Júlía Björnsdóttir |
Engar raðir síðan 2001. ©Júlía Björnsdóttir |
Svona líta flest mannvirkin út í Spreepark. ©Júlía Björnsdóttir |
Parísarhjólið sést víða að. Það snýst stundum þegar það er mikill vindur, en vagnarnir eru víst að ryðga í sundur og því ekki öruggt að setjast uppí þá. |
©Júlía Björnsdóttir |
Allstaðar sést parísarhjólið. ©Júlía Björnsdóttir |
Þessir tveir félagar voru við inngang garðsins og manni kom vissulega tímaflakk í hug. ©Júlía Björnsdóttir |
No comments:
Post a Comment